Meistari Alladín, allt ég geri fyrir ţig!Eiríkur Ólason

Þetta er seinbúið og pínku væmið blogg.

Þá er ávaxtakörfuævintýrið að baki og verður að segjast að þungu fargi er nú af mér létt og öllum sem komu að þessu leikriti.

Málið er það að á hverju ári (og stundum jafnvel oftar, sbr. Ventlasvín) tek ég þátt í þessu blessaða leikriti og á hverju ári er það jafnmikill sársauki í afturendann. Regluleg taugaáföll, vesen, skortur á tíma til að gera eitthvað annað og óhjákvæmileg leiðan á helvítis leikritinu sjálfu og allri rútínunni sem því fylgir. Á hverju. Fokking. Ári. En ef horft er á í réttu ljósi sér maður fljótt að ekkert af þessu skiptir í rauninni máli.

Djók.

Like hell að þetta skipti ekki máli. Ég veit ekki hve oft á mínu leiklistarferli ég hef bölvað sjálfum mér í sand og ösku fyrir að láta hafa mig út í þetta eina ferðina enn. Fuck. That. Shit.

En það sem ég er að reyna að segja er að þó að ég hafi oft séð eftir þessu, og réttilega það, þá hefði ég séð svo þúsund sinnum meira eftir því að vera ekki með. Eins og þeir* segja "það sem drepur þig ekki styrkir þig". En það er ekki bara það, það er reynslan og allar skemmtilegu sögurnar og, síðast en ekki síst, félagsskapurinn sem gerir þetta allt þess virði fyrir mig.

Þar að auki eru partýin sem við höldum í þessu félagi óhjákvæmilega goðsagnakennd. Gott dæmi um það er lokapartýið núna á sunnudaginn síðasta. Það er eitthvað óútskýranlega fallegt, guðdómlegt jafnvel, við það þegar fjórir strákar, blekaðri en allt, taka sameiginlega, þögla ákvörðun um að rífa sig úr að ofan af því þeir elska Knights of Cydonia bara svo fokking mikið. Þetta er karlmennskan holdi klædd.

Svo bara allir upp í sófa (stelpurnar mega vera með) að haldast í hendur og syngja með Bítlunum og Pink Floyd.

Þannig, allir sem voru með mér í þessu (þetta á líka við um Lísufólkið og Godot fólkið)…takk, þið eruð frábær.
-Eiríkur kuskeyra

*Hverjir "þeir" eru hef ég ekki traustar heimildir um, en mér skylst að þetta sé magnað fólk.

ReynslaEiríkur Ólason

Eitt er ég búinn að læra af henni: ekki halda á brauði í lófanum á meðan þú skerð það...

Kveðja,
-Eiríkur Handlama(-en-get-samt-eiginlega-notað-hendina-lúkka-bara-svo-badass-með-þetta-sárabindi)

ĆlaEiríkur Ólason

Laust eftir klukkan tíu leytið í morgun varð ég þeirri skemmtilegu reynslu ríkari að fá að láta troða sentimeters þykkri slöngu, niður í kok á mér og ofan í maga.

Kannski ég skanni inn myndina og þá fáið þið heldur betur að sjá á mér prívötin...þ.e. vélindað.

En semsagt...samkvæmt góða manninun sem gerði þetta við mig í bílnum sínum er ég með allt að algerlega óvirkan hringvöðva, þennan sem lokar á milli vélindans og magans svo að ég fari ekki að jórtra í tíma og ótíma.

Frá og með deginum í dag má ég þar af leiðandi ekki innbyrgða, nema í mjög litlu magni, appelsínur og aðra súra hluti, gos eða súkkulaði. Svo verð ég líka að hætta þessum keðjureykingum, eða að byrja að taka reykinn ofan í lungu, eins og mér er sagt að sé móðins, í staðinn fyrir magann.

Já, og núna er ég líka orðinn einn af þessum sem þurfa að muna eftir að "taka pilluna sína" á hverjum degi. Af hverju setti ég gæsalappir utan um "taka pilluna sína"? Ég veit það ekki.

Það var engin tvöföld merking þarna.

Hættu að horfa á mig!

Bakflæðiskveðjur og æla,
-Eiríkur

Í gćr sá ég mann međ merki sjálfstćđiflokksins tattúverađ á öxlinni.Eiríkur Ólason

Ég var með uppkast af mjög litríkri lýsingu á því þegar ég varð vitni að þessu en nú sé ég að þetta nægir. Þessi staðreynd stendur algerlega undir sér sjálf. Það og ég gleymdi að geyma helvítis uppkastið.

Peiberkötts, spćders end hómmeid englissEiríkur Ólason

Í gær tókst mér af minni alkunnu snilld að skera mig að minnsta kosti fjórum sinnum á pappír og/eða pappakössum í vinnunni. Enn stendur yfir leit að óupplýstum peiberköttum.

Og onn an önríleited nót þá hef ég aldrei séð kött úr pappír, en hversu svalt væri það?

Annars er það að frétta að fyrsta könguló sumarsins* er búin að búa sér til stóran og fallegan vef fyrir utan gluggann minn og spókar sig nú hér í miðnætursólinni á meðan ég horfi hugfanginn á.

Þetta blogg var í boði heimatilbúinnar ensku og lag dagsins er Eternal Bliss með Ampop.

Your lord and master,
-Eiríkur

*Þess ber að geta að þetta er væntanlega ekki fyrsta köngulóin sem komið hefur í heiminn í sumar, né er víst að þetta sé sú fyrsta sem hreiðrar um sig fyrir utan gluggann minn - ég dreg aldrei frá.

Sower-err!Eiríkur Ólason

Translation: It's over there.

Allavega, það er loksins komið að því...ég er ástfanginn. Af Edinburgh.

Og í raun öllu Skotlandi...landið er fagurt og frýtt og í raun skuggalega líkt Íslandi, landsmenn eru upp til hópa bæði yfirmáta vingjarnlegir og háværir og ekki skemmir fyrir sú skemmtilega tilbreyting að vera ekki sparkað út af börum sökum aldurs (ekki það að ég hafi nokkru sinni reynt að komast inn á íslenskan bar). Þar er líka, hvað sem öllu gengi líður enn nokkuð ódýrara að kaupa gallabuxur. En ætli þessi tveir síðustu punktar gildi ekki um flest ríki sem ekki eru frosin eyja lengst norður í Atlandshafi...fyrir utan Svalbarða...og hugsanlega Jan Mayen*.

En þrátt fyrir almenna ást mína á þessu landi, sem ég ætla að forðast eins og ég get að líkja við ást á konu, stendur Edinburgh þar upp úr, eins og tvö falleg brjóst á annars vel vaxinni stúlku. Fjandinn.

Guð blessi ykkur,
-Eiríkur í skotapilsi

*Grænland er ekki með.

Ţađ er rosagott ađ sofa út í fríum...Eiríkur Ólason

...en þegar maður er farinn að setjast niður við það að blogga klukkan-að-verða hálf 5 að morgni. Þetta er ekkert sniðugt.

Gildir einu, Adam (þ.e. ég) verður ekki mikið lengur í þessari súrrelísku útgáfu af paradís. Það er skóli á morgun fyrir 4 tímum og 23 mínútum.

Nom! Nom!
-Eiríkur

Besti partýleikur ever!Eiríkur Ólason

Hvernig er hann spilaður þið spyrjið? Jú, með því að sitja saman og semja bulltexta á íslenzku út frá enskum texta. Ekkert áfengi er nauðsynlegt, þó það saki ekki í litlum skömmtum, aðeins hugmyndaflug. Þannig er nefnilega mál með vexti að umsjónarmenn Söngkeppninnar gera þær kröfur að öll lög séu á íslenzku og í laginu sem ég komst áfram með er growl-kafli sem enginn getur vonast til að ná orði af þegar lagið er flutt live. En þar sem atkvæðafjöldi og stafir eru mjög mikilvægir til að takturinn og hljóðið eyðileggist ekki ákvað ég einfaldlega að skipta út ensku orðunum fyrir íslenzk sem hljóma eins. En upprunalegi textinn er semsagt svona:

There is failure inside
This test I can't persist
Kept back by the enigma
No criterias demanded here

Deadly patterns made my wreath
Prosperous in your ways
Pale ghost in the corner
Pouring a caress on your shoulder


Heilar voru brotnir af krafti og loksins fékkst eftirfarandi niðurstaða:

Þér ís selur ein sæt
Þis, hest, æ, kenndi, persi
Keppt, bekk, bæ, því, en, eigna
Nóg græt, tería, demant, er hér

Della´ í patt er, beit, maí, ríð
bros ber oss inn, jór, veik
Bein, gjóst, inni, konur
Bor Inga, kar, ess, ofn, jór, sól, der


Fuck the system!

Reyndar er þetta ágætis útdráttur á snilldinni sem þessi helgi var. Ég hitti gamla vini, kynntist nokkrum nýjum (jæja, tveimur), drakk í hófi og fór í sleik við strák, stelpu og bjórdós. Ef einhver efast enn um gæði þessa djamms þá eru tveir sogblettir (annar eftir Elvar og hinn eftir Kristinn) sitthvoru megin á hálsinum á mér sem eru ósammála!

Að lokum vil ég mæla með verkum Lasse Gjertsen, sem Þórgunnur var svo góð að sýna okkur, ef þið viljið hlæja dátt (Faen) eða slefa yfir frábærlega vel klipptu tónlistaratriði (Amateur).

Perkele!
-Eiríkur

SigrarEiríkur Ólason

Það eru litlu ánægjurnar í lífinu sem halda mér gangandi. Ég vinn til dæmis alltaf lítinn persónulegan sigur í hvert sinn sem ég fatta xkcd brandara. Þannig þið getið rétt ímyndað ykkur hvað afgangurinn af deginum var bjartur eftir að ég las þennan:

Krapp!Eiríkur Ólason

Hvernig á ég að fara að því að stytta 11 mínútna lag niður í 3?! Og að sama skapi að íslenska línur á borð við "I´m counting nocturnal hours/drowned visions in haunted sleep."

Ég skil af hverju Rúv vill ekki fá 11 mínútna lag í keppnina en mér finnst það nú lítið annað en sérviska og vesen að heimta það að keppendur þýði lögin yfir á Íslendsku!

Allavega...rétt undir mánuður til stefnu, best að hefjast handa, annað hvort á því að þýða The Drapery Falls, eða á mjög "sannfærandi" bréfi til útvarpsstjóra Rúv (anybody have any anthrax?).

Annars er ég rosa stoltur af vinahópnum mínum núna: ég á leiðinni í Söngkeppnina, Urður í Gettu Betur í sjónvarpssal, Kristinn í úrslit Eðlisfræðikeppni Framhaldsskólanna (eftir að hafa lent í öðru sæti í forkeppninni) og allir hinir til himna fyrir að vera súper osom.

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Eiríkur:

  • Nafn: Eiríkur Ólason
  • Stađur: Egilsstađir
  • Atvinna: Í menntaskóla